Uppgötvaðu Breez Barnakerru og fylgihluti

Njóttu hverrar stundar með Breez. Hann er nógu nettur fyrir borgarlífið en jafnframt nógu sterkur fyrir sveitavegi og veitir þér frelsi frá fyrsta degi, sama hvað dagurinn ber í skauti sér. Breez er hannaður af foreldrum fyrir foreldra og búinn snjöllum eiginleikum sem auðvelda hversdaginn: sæti sem hægt er að snúa í báðar áttir og leggja alveg niður, tveimur sætishæðum, rúmgóðri innkaupakörfu sem ber allt að 10 kg, loftræstingu í sætinu og RideTech hjólum sem rúlla mjúklega hvert sem leiðin liggur. Að degi loknum leggst Breez fyrirferðarlítið saman og er tilbúinn fyrir ævintýri morgundagsins. Með Breez verður foreldralífið einfaldara.