Notandi ber ábyrgð á að nota vöruna samkvæmt þeim leiðbeiningum sem fylgja vörunni.
Ábyrgðin gildir fyrir upprunalega kaupandann af vörunni og þarf kaupandi að sýna kvittun fyrir vörukaupunum. Geymið kvittunina.
Ábyrgðin gildir einungis á vörum sem keyptar eru á íslandi af viðurkenndum söluaðila Silver Cross.
Athugið að ábyrgðin gildir ekki ef eitthvað af eftirfarandi á við:
- Varan er skemmd vegna mistaka við samsetningu. Notið leiðbeiningar við að setja vöruna saman.
- Varan er skemmd vegna slæmrar meðferðar.
- Varan skemmdist í flutningi.
- Varan hefur ryðgað eða myglað vegna skorts á viðhaldi.
- Skemmdir eru vegna daglegs slits sem stafar af eðlilegri notkun.
- Skemmd er að völdum sólar, svita, þvottaefnis eða raka.
- Viðgerð eða breytingar hafa verið gerðar af þriðja aðila.
- Vara ekki keypt á íslandi.
- Vara er keypt notuð.
- Varan hefur lent í tjóni, þar með talið í flugi eða flutningum.