Skoðaðu Nia ferðakerruna og fylgihluti

Njóttu frelsisins með Nia. Hvort sem leiðin liggur milli heimsálfa eða um götur borgarinnar er Nia eina ferðakerran í heiminum sem er IATA-samþykkt fyrir farþegarými flugvéla, bæði með kerrusæti og vagnstykki. Já, þú last rétt. Nia aðlagast þínum þörfum frá fyrsta degi. Með samanbrjótanlegu vagnstykki, kerrusæti sem leggst alveg niður og möguleika á að festa ungbarnabílstól á grindina þarf ekki að gera neinar málamiðlanir. Stórferð eða stutt skott um bæinn? Nia er alltaf tilbúin. Hún kemst fyrir í farangurshólfinu fyrir ofan sætin í flugvélinni, litlu bílskotti og þröngu geymslurými í lestinni. Lítil samanbrotin, stór í notkun.