Upplýsingar um afhendingu
Afhending og sendingarmátar
Vörur sem keyptar eru í vefverslun Silver Cross er annaðhvort hægt að sækja á lager okkar eða fá sendar á valinn afhendingarstað.
Sóttar pantanir
Hægt er að sækja pantanir á lager okkar eftir samkomulagi. Þegar pöntunin er tilbúin höfum við samband með tölvupósti og finnum hentugan afhendingartíma.
Vinsamlega bíðið eftir staðfestingu áður en pöntunin er sótt.
Sendar pantanir
Pantanir eru afgreiddar eins fljótt og auðið er á virkum dögum. Þegar pöntunin hefur verið afhent flutningsaðila fær kaupandi tilkynningu.
Þeir sendingarmátar sem standa til boða og sendingarkostnaður birtast í greiðsluferlinu. Afhendingartími getur verið mismunandi eftir sendingarmáta og staðsetningu.
Mikilvægt að hafa í huga
Kaupandi ber ábyrgð á því að rétt heimilisfang, símanúmer og netfang séu gefin upp við pöntun. Ef tafir verða á afhendingu eða vara reynist ekki fáanleg höfum við samband eins fljótt og auðið er.
Ef þú hefur spurningar um afhendingu má hafa samband við okkur í tölvupósti á silvercross@silvercross.is